Deila

Við trúum á ævintýri (KVÍ/IFS)

KVIKMYNDASKÓLI ÍSLANDS

Við trúum á ævintýri / We believe in Adventure

Auglýsingin var unnin til þess að vekja athygli á náminu með sérstakri áherslu á tæknideild sem hefur þróast ört síðustu misseri. Hún var frumsýnd í öllum helstu kvikmyndahúsum með sýnishornum úr kvikmyndum í 4K upplausn og með 5.1 hljóðblöndun. Þá voru einnig gerðar sjónvarps- og vefútgáfur sem voru keyrðar frá 2015-2016. Að lokum var gerð alþjóðleg útgáfa af auglýsingunni á ensku sem var víða dreift og hafa nú hátt í 100 þúsund manns hafa séð hana.

Upphaflega útgáfan af þessari herferð var gerð upp úr myndum frá hinni eiginlegu tunglendingu 1969. Við útbjuggum plakat til dreifingar á höfuðborgarsvæðinu, dreifirit, heilsíðuauglýsingu, skjáauglýsingu og vefborða. Þetta varð til þess að þegar klukkuna vantaði korter í jól, þá var ákveðið að ráðast í leikna sjónvarpsauglýsingu sem yrði unnin upp úr sama concepti en þróuð lengra. Undirtektir voru með ólíkindum en margir töldu að um væri að ræða nýja kvikmynd þegar auglýsingin var sýnd í kvikmyndahúsum landsins. Kvikmyndaskóli Íslands hefur síðustu misseri verið í miklum uppgangi, hefur opnað alþjóðlega deild og vinnur að því að bjóða upp á BA nám í samvinnu við Háskóla Íslands.

Kvikmyndaskóli Íslands logo

PlayButton

99