Deila

SinfoniaNord

SINFONIANORD

Your Music Wants to Fly

SinfoniaNord er reynslumikil sinfóníuhljómsveit sem leitaði til 99 þegar vekja átti athygli á upptökuþjónustu meðal innlendra og erlendra kvikmyndaframleiðenda og tónlistarhöfunda. Sá hópur tilheyrir afmörkuðu sviði og ríkir því mikil samkeppni meðal sinfóníuhljómsveita víðsvegar að ná til hópsins. Kynna þurfti þjónustu Sinfóníunnar sem yfirburðar valkost og sýna fram á sérfræðiþekkingu þeirra á þessu sviði.

Út frá markaðsrannsókn var ákveðið hvernig ímynd sinfóníunnar myndi birtast í auglýsingum og hvaða lykilskilaboð þyrftu að berast til markhópsins. Hannaðar voru sjónrænar undirstöður sem endurspegluðu sérfræðiþekkingu, dulúð og fágun SinfoniaNord. Aðstaða var ljósmynduð og ítarlegur texti skrifaður um fyrirtækið og styrkleika þess. Fjallað var um stjórnendur, hljóðfæraleikara, tækni, hugvit og umhverfið í kring. Lokafurðin var ný vefsíða, auglýsingar og útlit fyrir samfélagsmiðla sem yrðu grunnurinn að öllu kynningarefni um ókomin ár.

SN-logo-small
99