Deila

Ræktaðu ferðamenn (Seve)

SEVE

Ræktaðu ferðamenn

Seve er einn stærsti alþjóðlegi framleiðandi einingahúsa. Fyrirtækið smíðar íbúðarhús, parhús og smáhýsi af öllum stærðum og gerðum sem hafa notið mikilla vinsælda víðsvegar um heim. Markmið auglýsingarinnar var að kynna nýtt hús, hannað af íslenskum arkitekt sem myndi henta vel fyrir ferðaþjónustu. Fyrst og fremst stóð markhópurinn uppi af íbúum á landsbyggðinni sem vildu ná sér í aukatekjur með því að bjóða upp á bændagistingu.

Lendingin varð „Ræktaðu ferðamenn“ sem þótti ná til markhópsins á hnyttin máta sem og fanga athyglina í miðlum þar sem samkeppnin um hana er töluverð. Myndin var síðan teiknuð til þess að kynna stemmninguna og opna augu landsbyggðarinnar fyrir tækifærunum sem liggja í loftinu.

Seve logo small
99