Hraðréttir (mbl)
Svokölluð „matarkláms myndbönd“ hafa notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum síðustu misseri og oft má sjá slík myndbönd af erlendum uppruna ná tugi milljóna áhorfa. Morgunblaðið leitaði aðstoðar 99 til þess að framleiða slík myndbönd fyrir nýjan lið í dagskrárgerð sem heitir Hraðréttir. Þar var lögð áhersla á að uppskriftirnar væru einfaldar, fljótlegar og gómsætar.
Mikilvægt var að maturinn liti sérstaklega vel út til þess að náttúruleg dreifing yrði sem mest. Til þess að slíkt takist er í ýmis horn að líta. Myndböndin hafa sérstakan tökustíl og þurfti því að setja saman sérstakan útbúnað fyrir tökur. Einnig þarf að huga að lýsingu, því skuggar og endurspeglun vökva getur haft mikil áhrif á útlit matarins. 99 sá um alla framleiðslu og eftirvinnslu, sem og allt útlit; hreyfigrafík, logo, umgjörð o.fl.





