Deila

Videntifier

Ákveðið var að nálgast þetta myndband á markvissan hátt og ekki síst í upplýsingagjöfinni. Við forðuðumst að offylla það af upplýsingum og var heldur ákveðið að gefa viðskiptavinum Videntifier nasasjón af möguleikunum. Videntifier er í dag mjög verðmætt fyrirtæki sem hefur verið í sífelldri sókn undanfarin ár.

  • /
Project Navigation

Lýsing

Verkefnið var unnið fyrir hið spennandi fyrirtæki Videntifier sem sérhæfir sig í lausnum sem auðkenna myndbandsgögn og innihald þeirra. Hugbúnaður Videntifier getur með öðrum orðum horft á myndband eða brot úr því, borið það saman við eigin gagnagrunn og auðkennt það. Þá geta þeir einnig auðkennt hluti innan myndbandsins eins og logo og fleira. Þetta hefur hjálpað lögregluyfirvöldum í baráttu við ólöglegt efni en nú snýr fókusinn þeirra að auglýsendum sem geta beitt hugbúnaðinum m.a. til þess að fylgjast með birtingu þess efnis sem þeir setja frá sér og greint á mjög skýran hátt hvaða niðurstöður fjárfestingar þeirra skila. Eins hefur Videntifier snúið sér að skemmtanaiðnaðinum og býður upp á alls kyns spennandi lausnir þar. Myndbandið var notað til kynningar á vörunni í Bandaríkjunum fyrir risa eins og Coca Cola, Nike og Procter & Gamble og prýddi það einnig heimasíðu fyrirtækisins.

Upplýsingar

Fá tilboð í svipað verkefni

Fix Margin 40px
99