Deila

Stream Tags App

Stream Tags er okkur sérstakt því þetta fyrirtæki var í eigu stofnenda 99. Um er að ræða forrit sem gefur þér upplýsingar um allt sem þú sérð eða heyrir þegar þú ert að njóta kvikmyndar.

Myndbandið sýnir par á kómískan hátt, rífast um innihald myndar. Stream Tags leysir öll þeirra vandamál (og þar á meðal þau sem snúa að hjúskapnum). Það gefur þeim upplýsingar um allt sem þau sjá og heyra í sjónvarpinu í rauntíma. Þau uppgötva áhugaverðar staðsetningar, uppskriftir og vörur sem þau gætu hugsað sér að kaupa. Hér fengum við frábært fólk til þess að leika par og sýna áhorfendum upplifunina á bak við Stream Tags. Myndbandið fór víða, þar á meðal fyrir augu forstjóra 20th Century Fox og vakti mikla lukku meðal fjárfesta sem buðu í fyrirtækið. Þá var Stream Tags tilnefnt til Nordic Startup Awards sem besti nýliðinn á frumkvöðlamarkaðnum 2013.

  • /
Project Navigation

Lýsing

Með spjaldtölvu í hönd færðu leikaranöfnin, fötin, staðsetningar, handritið, tónlistina og allt í rauntíma. Forritið hlustar á myndina og ef þú ert t.d. að horfa á par í t.d. Woody Allen mynd, spjalla saman á veitingastað, færðu upplýsingar um staðinn, matinn, gerð atriðsins, gleraugnagerðina sem Allen er með á sér, hálsfestið sem daman ber og hver höfundur lagsins er sem heyrist í bakgrunninum. Áhorfandinn getur svo verslað í rauntíma eða að mynd lokinni.

Upplýsingar

Fá tilboð í svipað verkefni

Fix Margin 40px
99