Deila

Stream Tags 1.0

Myndbandið var hraðsoðið saman á 3 kvöldum til þess að sækja um í Startup Reykjavík fyrir upphaflegu Stream Tags viðskiptahugmyndina og er eitt fyrsta myndbandið sem 99 gerði. Þá var fengin besta rödd í heimi til þess að talsetja myndbandið og tókst það með ágætum.

  • /
Project Navigation

Lýsing

Stream Tags er okkur sérstakt því þetta fyrirtæki var í eigu stofnenda Auglýsingastofunnar 99. Um er að ræða forrit sem gefur þér upplýsingar um allt sem þú sérð eða heyrir þegar þú ert að njóta kvikmyndar. Með spjaldtölvu í hönd færðu leikaranöfnin, fötin, staðsetningar, handritið, tónlistina og allt í rauntíma. Forritið hlustar á myndina og ef þú ert t.d. að horfa á par í t.d. Woody Allen mynd, spjalla saman á veitingastað, færðu upplýsingar um staðinn, matinn, gerð atriðsins, gleraugnagerðina sem Allen er með á sér, hálsfestið sem daman ber og hver höfundur lagsins er sem heyrist í bakgrunninum. Áhorfandinn getur svo bætt því sem hann sér eða heyrir í körfu og verslað í rauntíma eða að mynd lokinni. Myndbandið tryggði okkur sæti í fyrstu umferð Startup Reykjavík árið 2012. Þá var Stream Tags tilnefnt til Nordic Startup Awards sem besti nýliðinn á frumkvöðlamarkaðnum 2013.

Upplýsingar

  • Flokkur: Myndbönd
  • Dagsetning: 2012
  • Viðskiptavinur: Stream Tags

Fá tilboð í svipað verkefni

Fix Margin 40px
99