Under the Dome
Lýsing
Under the Dome var einn sá fyrstur þátta sem fór í stöflun þar sem áhorfendur gátu horft á heila seríu án takmarkanna. Til þess að vekja athygli á lendingu þáttanna útbjuggum við glerhvelfingu yfir Reykjavík sem mátti svo prýða forsíðu fréttatímans líkt og um raunverulega frétt væri að ræða. Fjöldi fólks hafði áhyggjur af þessari dularfullu hvelfingu og skildi hvorki upp né niður þar til í ljós kom að um nýjan sjónvarpsþátt væri að ræða. Þetta rímaði svo við kitlu sem var útbúinn fyrir sjónvarp. Þegar aðstandendur SkjásEins héldu til Cannes á markað sjónvarpsþátta hittu þeir aðalleikara þáttanna, þ.á.m. Dean Norris og Rachelle Lefevre sem dásömuðu auglýsingaherferðina og sögðu hana þá bestu sem þau hefðu séð í kynningu á þáttunum.
Það þótti allt annað en sjálfsagt mál að innleiða þessar markaðsherferð inn í samskonar útlit og Fréttatíminn notast við. Var því mikið um fundarhöld og forsíðunni breytt þó nokkrum sinnum áður en hún var að lokum samþykkt.
Að auki útbjuggum við hreyfigrafík fyrir hefðbundinn trailer þáttarins.
Upplýsingar
-
Flokkur: Blaðaauglýsingar / Myndbönd / Prentefni / Vefborðar
-
Dagsetning: 2013
-
Viðskiptavinur: SkjárEinn / Síminn



