Í lengri útgáfu myndbandsins förum við stuttlega yfir sögu manns sem man ekki eftir ömmu sinni frá yngri árum. Hugbúnaður Ævi býður honum tækifæri á að skilja barnabörnin sín eftir með fjársjóð af minningum og sögum af sér sjálfum. Aðal markhópur myndbandsins voru fjárfestar sem þurfti að hreyfa við en á sama tíma að útskýra hugmyndina á skýran hátt. Við nálguðumst fjárfestana ekki eins og fjárfesta, við nálguðumst þá eins og fólk og það teljum við hafa gert gæfumuninn.
Ævi
Lýsing
Ævi er sprotafyrirtæki sem byggir á þeirri hugmynd að varðveita minningar þeirra sem kveðja heiminn og enn fremur gefa þeim stað til þess að skilja eftir gögn og skilaboð til ástvina. Fyrirtækið fór á mikið flug en útbúin voru myndbönd á ensku og íslensku til þess að sýna fjárfestum grundvallarhugmyndina. Í kjölfar myndbandsins tryggði Ævi sér stóra fjárfestingu sem gerði þeim kleift að starfa áfram. Þau hafa m.a. hlotið styrki frá Arion banka og Tækniþróunarsjóði. Gerðar voru langar og stuttar útgáfur af myndbandinu á íslensku og ensku.
Fix Margin 40px



