Deila

Það er snjallt að búa í Kópavogi (XD)

SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN

Það er snjallt að búa í Kópavogi

99 sá um auglýsingaherferð Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir sveitastjórnakosningar 2018. Í gegnum tíðina hefur verið sjaldgæft að stjórnmálaflokkar fari út fyrir kassann í kosningaherferðum þar sem áhersla er gjarnan lögð á að upplýsa en í senn lágmarka áhættu. Kynningarefni stjórnmálaflokka er því sjaldan eitthvað sem keppist um athygli fólks.

Í upphafi verkefnisins var farið yfir hvaða málefni voru unnin á síðasta kjörtímabili og hver stefnumótun og framtíðaráætlanir flokksins væru í framhaldinu. Frambjóðendur voru ljósmyndaðir, útlit var hannað fyrir herferð, nýtt kjörorð samið, birtingaráætlun kortlögð og handrit fyrir leikna kosningaauglýsingu skrifað. Í herferðinni var ákveðið að leiðtogi flokksins, Ármann Kr. Ólafsson kæmi til dyranna eins og hann er klæddur, með húmor fyrir sjálfum sér, sterka sýn fyrir framtíðinni og brennandi áhuga á snjöllum rekstri bæjarfélagsins. Ýmis málefni voru tekin fyrir í kosningamyndbandi flokksins. Áhersla var lögð á að sýna mannlegu hlið Ármanns og að auglýsingin skæri sig frá myndböndum annarra flokka. Það heppnaðist og auglýsingin vakti mikla athygli stuttu fyrir kjördag. Myndskeiðið fékk um 100.000 áhorf á þremur dögum en íbúar á kjörskrá hjá Kópavogi eru einungis 26.000. Auglýsingin fékk töluverða dreifingu í fjölmiðlum og einn þekktasti álitsgjafi og sérfræðingur ríkisútvarpsins á sviði PR mála tók þessa herferð sérstaklega fyrir og lýsti sem snjallri kosningaauglýsingu sem hitti í mark.

Logo XD

PlayButton

99