Dagur í lífi Sölku Sólar (Askja)
Bílaumboðið Askja sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu á bifreiðum frá Mercedes-Benz og Kia, leitaði hjálpar 99 til þess að vinna myndband í samstarfi við söngkonuna Sölku Sól, sem er áhrifavaldur á snærum fyrirtækisins. Sýna átti hvernig bíllinn Kia Soul nýttist poppstjörnunni í daglegu annríki ásamt því að kynna nýjustu árgerð bílsins.
Yfir nokkra mánaða tímabil voru tvinnaðar saman upptökur frá Sölku í daglegu lífi og ásamt myndefni frá 99 til þess að skapa “VLOG” myndbandsstemningu, sem er vinsæl á netmiðlum í dag.





