Deila

Haustfagnaður Skjásins: Glæpaþema

Fyrir sjálf hátíðarhöldin var útbúinn lögreglumyndatökuveggur þar sem gestir gátu borið stærð sína saman við þekktar sjónvarpsstjörnur úr þáttum á SkjáEinum. Að auki voru merkt skotglös sem litu út eins og sýni, spilastokkur með helstu morðingunum á SkjáEinum, blöðrur, skreytingar, passar fyrir starfsfólk o.fl. Þá var hönnuð opna í dagblöðin þar sem heitustu stjörnum glæpaþáttanna var skeytt saman. 99 gerði hreyfigrafíkina fyrir þættina sem koma fram í kynningarmyndbandinu. Að auki var útbúin þrívíð „loopa“ með SkjásEins merkinu sem fékk að snúast á meðan gestir komu sér fyrir í bíósal.

  • /
Project Navigation

Lýsing

Haustfagnaður Skjásins eru hátíðarhöld þar sem auglýsendum og fleirum er boðið að sjá brot af haustdagskrá sjónvarpsstöðvarinnar. Í þetta skiptið var ákveðið að notast við glæpaþema þar sem nokkur áhersla var á glæpi og drama í dagskránni framundan.

Upplýsingar

Fá tilboð í svipað verkefni

Fix Margin 40px
99