Deila

Iceland School of Energy

Í myndbandinu er jákvæður og vongóður blær sem talar vel til markhópsins sem eru nemendur orkugeirans. Við heyrum frá forseta Íslands, kennurum, skólastjórnendum, forstjórum, sérfræðingum og sjálfum nemendunum. Þá er Ísland í áberandi og ekki síður mikilvægu hlutverki, sem er með sanni miðpunktur heimsins þegar kemur að endurnýtanlegri og sjálfbærri orku. Þetta var saumað saman við yfirlitsmyndir af Reykjavík, náttúrunni og skólanum sem teknar voru á flygildi (eða dróna á ekki eins góðri íslensku).

  • /
Project Navigation

Lýsing

Iceland School of Energy, sem er hluti af Háskólanum í Reykjavík, nálgaðist okkur með það í huga að kynna námið erlendis fyrir nýnemum. Þeirra markmið er að útskrifa sérfræðinga á sviði hreinnar orku svo að veröldin okkar geti orðið sjálfbær. Ákveðið var að gera myndband sem kynnir námið og sýnir hversu samkeppnishæft Ísland er í orkugeiranum. Árangur myndbandsins skýr. Umsóknir hrúguðust inn og skólinn einhver sá flottasti í dag.

Upplýsingar

Fá tilboð í svipað verkefni

Fix Margin 40px
99