Okkar hlutverk (Fulltingi)
Fulltingi er framsækin lögmannsstofa sem veitir einstaklingum sérhæfða þjónustu á sviði bótaréttar. Vegna örrar framþróunar samfélagsmiðla og vaxandi markaðssetningar á internetinu vildi fyrirtækið efla forskot sitt með því að færa markaðsstarf sitt í þá átt.
99 gerði úttekt á fyrirtækinu, kynntist markaðinum og skapaði herferð í kjölfarið. Markmiðið var að opna dyrnar, kynna andlitin á bak við þjónustuna með persónulegri nálgun og koma fyrirtækinu af stað í efnissköpun til þess að gera alla snertifleti við markhópa fyrirtækisins lifandi og áhugaverða. Með þessu skapast aukin vitund um Fulltingi og ávinning af þjónustu fyrirtækisins. Þá er ætlunin að opna umræðuna í samfélaginu. Með þessu hefur orðið vitundarvakning, fólk er meðvitaðra um mikilvægi eigin heilsu, rétt sinn til bóta og sækir sér því frekar aðstoð í kjölfar slysa.





