Megináhersla var lögð á að kynna sem flesta frambjóðendur fremur en að setja fókus á 1 eða 2 einstaklinga. Þá voru útbúnar auglýsingar fyrir samfélagsmiðla, dagblaðaauglýsingar, skjáauglýsingar, auglýsingaskilti, merkingar og fjöldapóstur á allt höfuðborgarsvæðið. Litagleði einkenndi þessa herferð. En Sjálfstæðisflokkurinn fékk um 33,9% atkvæða í Suðvesturkjördæmi og reyndust því niðurstöðurnar hafa farið fram úr björtustu vonum flokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn – kosningar 2016
Lýsing
Fyrir kosningarnar 2016 þurfti Sjálfstæðisflokkurinn á töluverðri andlitslyftingu að halda og ná til breiðari hóps. 99 var fengið til þess að framleiða efni fyrir flokkinn í Suðvesturkjördæmi. Í stað þess að fara í samkeppni við aðalframleiðsluna sem voru hin ýmsu myndbönd með kökum og fleiru var ákveðið að gefa hverjum og einum færi á að tjá sig á myndbandsupptöku og segja frá sínum áhersluatriðum. Ásamt því var útbúið kynningarefni frambjóðendur og flokkinn.
Upplýsingar
-
Flokkur: Blaðaauglýsingar / Bæklingar / Myndbönd / Prentefni / Vefborðar / Merkingar / Plaköt / Skjáauglýsingar
-
Dagsetning: 2016
-
Viðskiptavinur: Sjálfstæðisflokkurinn
Fix Margin 40px



