Í þessu fyrsta myndbandi fyrir hönd Startup Reykjavík var okkur skaffað efni úr ýmsum áttum sem við vorum beðin um að setja saman og búa til einhvers konar heildræna útkomu. Við ákváðum að fara í ævintýrin í bland við húmor því hvort tveggja er mjög lýsandi fyrir frumkvöðlaheiminn. Myndbandið er mjög lýsandi fyrir tímabilið en það hefur þróast gríðarlega síðan 2012 sökum öflugra aðstandenda sem ávallt eru að betrumbæta hvern einasta þátt programsins. Startup Reykjavík er gríðarlega mikilvægt fyrir frumkvöðlaheiminn á Íslandi og ekki síður efnahaginn, sönnur fyrir því hafa hrúgast upp.
Startup Reykjavík 2012
Lýsing
Frumkvöðlaprogramið Startup Reykjavík hófst vorið 2012 sem Arion banki setti af stað ásamt fyrirtækjunum Klak og Innovit (sem hafa sameinast í eitt fyrirtæki, Icelandic Startups). Út úr programinu komu ýmsar frábærar hugmyndir sem eiga góðan möguleika á að breyta heiminum en það er yfirleitt drauma niðurstaðan í svona programi. Við vorum beðin um að vinna úr efniviði sem samanstóð mestmegnis af símamyndböndum sem aðstandendur programsins höfðu tekið upp. Það fóru því engar upptökur fram af okkar hálfu í þessu myndbandi. Hins vegar fundum við leið til þess að klippa saman efni úr ýmsum áttum og gera nokkuð ævintýralegt myndband til þess að vekja áhuga á þessu framtaki hérlendis sem og fyrir utan landsteinana. Áhuginn á Startup Reykjavík jókst svo um munaði því umsóknir í programið voru tvöfalt fleiri árið eftir.
Upplýsingar
-
Flokkur: Myndbönd
-
Dagsetning: 2012
-
Viðskiptavinur: Icelandic Startups



