Stream Tags er okkur sérstakt því þetta fyrirtæki var í eigu stofnenda 99. Um er að ræða forrit sem gefur þér upplýsingar um allt sem þú sérð eða heyrir þegar þú ert að njóta kvikmyndar.
Myndbandið sýnir par á kómískan hátt, rífast um innihald myndar. Stream Tags leysir öll þeirra vandamál (og þar á meðal þau sem snúa að hjúskapnum). Það gefur þeim upplýsingar um allt sem þau sjá og heyra í sjónvarpinu í rauntíma. Þau uppgötva áhugaverðar staðsetningar, uppskriftir og vörur sem þau gætu hugsað sér að kaupa. Hér fengum við frábært fólk til þess að leika par og sýna áhorfendum upplifunina á bak við Stream Tags. Myndbandið fór víða, þar á meðal fyrir augu forstjóra 20th Century Fox og vakti mikla lukku meðal fjárfesta sem buðu í fyrirtækið. Þá var Stream Tags tilnefnt til Nordic Startup Awards sem besti nýliðinn á frumkvöðlamarkaðnum 2013.



