Þetta var þó nokkuð tilraunaverk því stúdíóútgáfa af laginu (sem síðar var sett yfir) var ekki tilbúin þegar myndbandið var tekið upp. Hins vegar reddaðist þetta allt í eftirvinnslunni eins og alltaf. Ávallt ánægjulegt að vinna með Majestic Productions og þessum frábæra listamanni sem hún Gréta er.
Vetrarsálmur
Lýsing
Myndbandið var unnið fyrir snillinginn hana Grétu Salóme í samráði við Majestic Productions. Það var svo sýnt á aðfangadag á RÚV og fór í senn í dreifingu á netinu. Gréta hefur vægast sagt sigrað tónlistarheiminn síðustu misserin og verður gaman að fylgjast með henni um ókomna tíð.
Upplýsingar
-
Flokkur: Myndbönd
-
Dagsetning: 2013
-
Viðskiptavinur: Gréta Salóme
Fix Margin 40px



