Hrífunes Nature Park
Lýsing
Hrífunes Nature Park er ný og glæsileg frístundabyggð á miðju Suðurlandi. Eigandi landsvæðisins nálgaðist 99 með það markmið að skapa brand (eða í erfiðri þýðingu, vörumerki) fyrir heilsárshúsabyggð sem hann hugðist reisa á stórbrotnu landsvæði stutt frá Vík í Mýrdal.
Byrjað var á ítarlegri markaðsrannsókn til þess að kynnast tilvonandi markhópi tilvonandi kaupenda. Hófst svo rannsókn á svæðinu ásamt SVÓT greiningu (Styrkleikar og veikleikar, ógnanir og tækifæri). Brandið Hrífunes Nature Park varð til: útlit, ímynd og áherslur og logo. Hannaður var bæklingur sem þróaðist í 70 blaðsíðna bók (30×30 cm) um landsvæðið og húsin. Í bókinni má finna ljósmyndir og lýsingar á afþreyingarmöguleikum í kringum svæðið, öllum helstu náttúruperlum í nágrenninu, húsunum sem hafa nú þegar verið reist og upplýsingar um þær upplifanir sem finnast víða í Hrífunes Nature Park.
99 hefur séð um alla hönnun vörumerkisins, þar á meðal allt kynningarefni og merkingar á sjálfu svæðinu.
Upplýsingar
-
Dagsetning: 2017-2018
-
Viðskiptavinur: Hrífunes Nature Park



