Herferðin var unnin á blandaða miðla; í sjónvarp, á vefinn, samfélagsmiðla og prent með frábærum árangri.
Söngfuglar
Lýsing
Á árinu áður höfðum við frískað upp á ímynd Söngskóla Sigurðar Demetz. Nú var kominn tími til þess að sækja fram og vekja athygli á því frábæra starfi sem þessi skóli hefur staðið fyrir.
Markmiðið var bæði að brjóta upp þá staðalímynd sem vill oft fylgja söngnáminu – að þar taki sig allir hátíðlega og tali í gátum. En í skólanum ríkir léttur andi enda margir húmoristar í kennslunni. Á sama tíma er þarna að finna fyrsta flokks fagfólk sem hefur komið víða við í sönggeiranum.
Við vildum ná til helsta markhóps skólans, 17-30 ára og tala til þessa hóps sérstaklega. Eins var farið í hnitmiðaðar prentauglýsingar til að ná til eldri kynslóðanna sem oft lauma upplýsingunum að börnum sínum og barnabörnum.
Upplýsingar
-
Flokkur: Myndbönd / Hreyfigrafík / Skjáauglýsingar / Bíóauglýsingar / Blaðaauglýsingar / Plaköt / Prentefni / Vefborðar
-
Dagsetning: 2017
-
Viðskiptavinur: Söngskóli Sigurðar Demetz
Fix Margin 40px



